Sjálfbærnistefnan okkar
Advania hefur uppfært sjálfbærnistefnu sína sem byggir á tvöfaldri mikilvægisgreiningu sem metur áhrif starfsemi Advania og hvaða áhættur og tækifæri eru til staðar vegna þeirra áhrifa.
Út frá því völdum við mikilvægustu sjálfbærniþættina í okkar starfsemi, þeir þættir skiptast í umhverfismál
(E1-E5), félagslega þætti (S1-S3), og stjórnarhætti (G1-G2).
Umhverfisþættir
- E1- Aðlögun að loftslagsbreytingum
- E1- Mótvægisaðgerðir vegna loftslagsbreytinga
- E5- Endurnýjanleg orka og orkunýtni
- E5- Auðlindanotkun og hringrásarhagkerfi
Félagslegir þættir
- S1- Fjölbreytni starfsfólks og inngilding
- S2- Starfsfólk í aðfangakeðju
- S3- Ábyrg öflun efna
- S3- Ábyrg meðhöndlun raftækjaúrgangs
Stjórnarhættir
- G1- Fyrirtækjamenning, varnir gegn spillingu og mútum
- G2- Netöryggi og persónuvernd