Copilot Studio

Gervigreind út frá þínum gögnum og þínum forsendum.

Spjöllum saman

Gervigreind eftir þínu höfði

Sérsniðin gervigreind
Copilot Studio gerir þér kleift að búa til þína eigin gervigreindarfulltrúa sem eru sérsniðnir að þörfum fyrirtækisins – hvort sem það er fyrir þjónustuborð, mannauð eða innri rekstur.
Tenging við þín gögn
Þú getur tengt Copilot Studio við viðskiptakerfi, gagnagrunna og önnur innri kerfi til að tryggja að gervigreindin vinni með rétt og uppfærð rekstrargögn.
Sjálfvirknivæðing á næsta stig
Með Power Automate samþættingu getur Copilot Studio framkvæmt sjálfvirkar aðgerðir – t.d. bókað fundi, opnað mál eða sent tilkynningar – án þess að starfsfólk þurfi að grípa inn í.
Sveigjanleiki og rekstrarhagkvæmni
Copilto Studio er sveigjanleg og skalanleg lausn, sem gerir fyrirtækjum kleift að bæta þjónustu og auka afköst án þess að auka mannafla – sem skilar sér í lægri rekstrarkostnaði og betri nýtingu fjármuna.

Microsoft Copilot Studio er hluti af Power Platform fjölskyldunni. Þessi vettvangur gerir fyrirtækjum kleift að hraða stafrænivæðingu ferla, greina gögn og búa til sérsniðnar lausnir – án þess að þurfa mikla forritunarkunnáttu. Power Platform samanstendur af af þessum fimm vörum frá Microsoft.

Power Platform vinnustofa

Stafræn umbreyting með Power Platform opnar nýja möguleika fyrir fyrirtæki til að ná ótrúlegum árangri á skömmum tíma. Við bjóðum fyrirtækjum vinnustofu þar sem við kortleggjum tækifæri þeirra í sjálfvirknivæðingu, gagnadrifinni ákvarðanatöku og þróun sérsniðinna lausna. Vinnustofan veitir heildstæða sýn á hvernig hægt er að nýta tæknina til að auka skilvirkni í rekstri og efla verðmætasköpun.

Hefur þú áhuga á að kanna möguleikana sem Power Platform býður upp á fyrir þitt fyrirtæki? Hafðu samband og við finnum tíma sem hentar þér.

Spjöllum saman

Hvernig lausn ertu að leita að?

Tilbúnar lausnir

Advania býður upp á tilbúnar lausnir í Power Platform sem geta hentað þínum þörfum. Með tilbúnum lausnum kemstu hraðar af stað í notkun á Power Platform.

Sjáðu nánar

Sérsniðnar lausnir

Stendurðu frammi fyrir einhverjum vandamálum í þínum rekstri sem þú þarft að leysa með snjallri nýtingu upplýsingatæknni. Mögulega eitthvað sem þú getur leyst með Power Platform?

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um Power Platform?
Sendu okkur fyrirspurn.