| Án samnings | Basic | Standard | Premium | |
|---|---|---|---|---|
| Aðgangur að þjónustuborði | √ | √ | √ | √ |
| Viðbragðstími þjónustuborðs | 4 klst. | 4 klst. | 2 klst. | |
| Staða þjónustuverka á þjónustugátt | √ | √ | √ | √ |
| Aðgangur að veffyrirlestrum | √ | √ | √ | √ |
| Innifaldir mánaðarlegir þjónustutímar | 30 mín | 2 klst. | 4 klst. | |
| Úttekt á umhverfi við upphaf samnings | √ | √ | ||
| Notendaumsjón* | √ | √ | ||
| Afsláttur af útseldri vinnu | 15% | 20% | ||
| Stöðufundir | 2 á ári | 4 á ári | ||
| Mentor | √ | |||
| Binditími | 3 mánuðir | 3 mánuðir | 3 mánuðir | |
| Mánaðarverð | 29.900 kr. án vsk. | 59.900 kr. án vsk. | 250.000 kr. án vsk. |
Valkvæðar viðbætur við samninga
| Verð | |
|---|---|
| Power Platform ALM - Innbyggt** | 45.000 kr. án vsk. |
| Power Platform ALM - Azure DevOps** | 290.000 kr. án vsk. |
Þjónustulýsingar
Öllum viðskiptavinum stendur til boða að hringja (440-9000) inn á almennt þjónustuborð Advania á skilgreindum opnunartíma þar sem þeir geta lagt inn þjónustubeiðni sem síðan er send á ráðgjafaborð Power Platform deildarinnar. Beiðnin fer þar í forgangsröðun út frá þjónustusamning viðkomandi viðskiptavinar og svarað innan skilgeinds viðbragðstíma. Viðskiptavinur getur einnig sent inn þjónustubeiðni á netfangið bi@advania.is og stofnast þá sjálfkrafa í beiðnakerfi Advania.
Advania vinnur umbeðin verk sem berast inn á þjónustuborðið í símtölum eða með öðrum hætti og innheimtir gjald fyrir slíka vinnu samkvæmt gjaldskrá Advania. Umsamin sérkjör viðskiptavinar taka mið af gildandi gjaldskrá hverju sinni.
Advania er með veffyrirlestra um ákveðin málefni sem notendur geta skráð sig á. Allir skráðir einstaklingar á póstlista Advania í Power Platform fá upplýsingar um veffyrirlestra en einnig er hægt að fylgjast með næstu dagskrá veffyrirlestra á heimasíðu Advania.
Skráning á póstlista fer fram á https://powerplatform.advania.is/postlistar
Viðskiptavinir geta sent erindi inn á Power Platform þjónustuborð Advania og fengið úrlausn sinna mála með því að nýta innifalda tíma í hverjum mánuði. Fari verk umfram innifalda tíma er viðskiptavinur upplýstur um slíkt og tilkynnt að greiða þurfi fyrir verkið samkvæmt gjaldskrá og kjörum viðskiptavinar.
Ónýttir tímar hvers mánaðar mynda ekki inneign yfir í næsta mánuð á eftir heldur fyrnast um hver mánaðarmót.
Við framkvæmum ítarlega úttekt á Power Platform umhverfi viðskiptavinar við upphaf samnings til að tryggja öryggi, stjórnhæfni og bestu venjur.
Úttektin felur í sér:
- Greining á tenant-stillingum: Yfirferð á sjálfgefnum réttindum, t.d. úthlutun Developer-, Production- og Trial-umhverfa, og takmörkun á sjálfsafgreiðslu.
- Umhverfisstillingar: Staðfesting á öryggishópum, uppfærslutakti (refresh cadence) og aðgangsstýringum.
- Öryggi og stjórnun: Yfirferð á DLP-stefnum, hlutverkum (RBAC), og virkjun audit logs.
- Bestu venjur í uppsetningu: Skipting Dev/Test/Prod, lausnastjórnun (Solutions), og eftirlit í Power Platform Admin Center.
- Skýrsla og umbótaáætlun: Afhending á niðurstöðum, áhættumati og tillögum að úrbótum.
Markmiðið er að draga úr áhættu, tryggja samræmi við bestu venjur Microsoft og leggja grunn að öruggri og skilvirkri notkun Power Platform.
Að lokinni úttekt er viðskiptavini afhent skýrsla með niðurstöðum, áhættumati og tillögum að úrbótum. Viðskiptavinur tekur síðan ákvörðun um hvaða úrbætur verða framkvæmdar og í hvaða forgangi.
Notendaumsjón innifelur þjónustu tengt notendaumsýslu á notendum í Power Platform.
Eftirfarandi atriði eru innifalin. Annað utan þessarar upptalningar er greitt sérstaklega fyrir.
- Umsýsla leyfa Microsoft fyrir Power Platform, þ.e. pöntun á nýjum leyfum, breyting á leyfum eða uppsögn leyfa.
- Stofnun notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavinar.
- Úthlutun og/eða breyting á Power Platform leyfum notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavinar.
- Endurstilling lykilorða notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavina.
*Notendaumsjón er háð því að viðskiptavinur hafi gefið Advania viðeigandi heimildir til umsýslu notendaupplýsinga í Microsoft umhverfi sínu.
Valkvæðar viðbætur
Viðskiptavinir með þjónustusamning hafa val um að bæta við uppsetningu á innbyggðri ALM uppsetningu í Power Platform sem inniheldur CI/CD pípur sem trygggir örugga og rekjanlega dreifingu lausna frá þróun til framleiðslu.
Viðskiptavinir sem velja þessa leið eru þó háðir þeim kröfum sem Microsoft setur á þessa virkni.
Viðskiptavinir með annað hvort Standard eða Premium þjónustusamning hafa val um að bæta við sértækri ALM uppsetningu Advania í Azure DevOps sem inniheldur Git repos, CI/CD pipelines og bestu venjur fyrir Power Platform. Þetta tryggir sjálfvirka, örugga og rekjanlega dreifingu lausna frá þróun til framleiðslu.
Helstu verkþættir
- Skipulag og stefna
- Skilgreina ALM-arkitektúr, umhverfisstefnu (Dev/Test/Prod) og stjórnhæfni.
- Source Control
- Setja upp Git repositories í Azure DevOps fyrir Power Platform lausnir.
- Innleiða útgáfustjórnun og branching-strategíu.
- Power Platform CLI og Solutions
- Nota Power Platform CLI til að flytja lausnir milli umhverfa.
- Skilgreina Managed og Unmanaged Solutions fyrir ALM.
- CI/CD Pipelines
- Búa til Azure DevOps pipelines fyrir:
- Sjálfvirka byggingu og útgáfu lausna.
- Prófanir og samþykktarferli.
- Búa til Azure DevOps pipelines fyrir:
- Environment Variables og Connection References
- Stilla breytur og tengingar til að tryggja flytjanleika milli umhverfa.
- Bestu venjur og stjórnhæfni
- Innleiða samþykktarferli, rekjanleika og öryggisráðstafanir.
- Skilgreina ferla fyrir breytingastjórnun og útgáfustjórnun.
Tölum saman
Viltu vita meira um Power Platform og þjónustuleiðirnar eða vantar ráðgjöf?
Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband um hæl.