Hilla

Eignastýringalausn sem gefur þér heildstæða yfirsýn yfir allan búnað í eigu fyrirtækisins með möguleika á tengingar við ytri kerfi.
Bókaðu greiningu

Af hverju skiptir Hilla máli?

Heildstætt yfirlit yfir allan búnað
Allur búnaður fyrirtækisins á einum stað með skilgreindri ábyrgð, úthlutanir og virði. Enginn tími tapast í að leita í Excel-skjölum eða tölvupóstum.
Samþætting við lykilkerfi
Hægt er að tengja Hillu við ýmis kerfi, þ.á.m. Business Central og Microsoft Intune. Eignir eru stofnaðar sjálfkrafa í bókhaldinu og búnaðarupplýsingar úr Intune eru aðgengilegar á einum stað sem takmarkar tvítekningar og tryggir réttar upplýsingar á milli kerfa.
Gervigreindarknúin reikningaskönnun
Reikningar eru skannaðir með gervigreindarvirkni og upplýsingar fylltar sjálfkrafa inn á búnaðarspjald. Minnkar innsláttarvillur og sparar handvirka vinnu.
Úthlutanir og þjónustubeiðnir í einu skrefi
Starfsmenn fá búnað úthlutaðan með rekjanlegum feril. Hægt er að senda þjónustubeiðni beint til birgja úr appinu sem styttir viðbragðstíma frá bilun til viðgerðar.
EINFÖLD FRAMSETNING

Hvað gerir lausnin?

Lausnin heldur utan um allan búnað fyrirtækisins á einum stað, einfaldar daglega verkferla og dregur úr handvirkri vinnu starfsmanna með sjálfvirkni og samþættingu við lykilkerfi eins og Business Central og Microsoft Intune.

Í stað þess að treysta á dreifð Excel-skjöl eða handvirka skráningu færðu heildstætt yfirlit yfir ábyrgðarstöðu, úthlutanir og virði búnaðar, ásamt gervigreindarknúinni reikningaskönnun sem fyllir sjálfkrafa í upplýsingaspjöld um búnað.

Stjórnendaviðmót

Hvað færðu í hendurnar?

Hilla býður upp á stjórnendaviðmót þar sem hægt er að hafa fulla yfirsýn yfir búnað, tegundir, úthlutanir, birgja og þjónustubeiðnir ásamt stillanlegum reitum sem aðlaga kerfið að þörfum hvers fyrirtækis, allt frá prefix-stillingum og ábyrgðarreglum til samþættingar við Business Central og Intune.
Viltu vita meira?

Spjöllum saman

Viltu vita meira um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn