Allt sem sölufólk þarf - hvar og hvenær sem er
Karva er öflugt sölu- og dreifingarapp sem tengist beint við bókhaldskerfið þitt. Lausnin gerir sölufólki kleift að vinna hraðar og taka niður pantanir á ferðinni – jafnvel án netsambands. Með Karva færðu fullkomið yfirlit yfir vörurlista, pantanir og lykiltölfræði í rauntíma.
Spjöllum saman

Pantanaferlið einföldað til muna

Pantanir án netsambands
Taktu niður pantanir hvar sem er, nettenging er engin hindrun.
Sjálfvirkir ferlar
Pantanir flæða sjálfvirkt beint í bókhaldskerfið og mynda sjálfkrafa reikningpantanir.
Sérsniðnir vörulistar
Sölufólk sér aðeins þær vörur sem henta hverjum viðskiptavini.
Tölfræði og yfirlit
Fylgstu með lykilupplýsingum á einum stað, í rauntíma.
Ekkert samband?

Engin nettenging, ekkert vandamál

Karva er hannað fyrir sölufólk á ferðinni. Þú getur tekið niður pantanir hvar sem er, jafnvel án netsambands, og tryggt að gögnin tapist ekki. Þegar nettenging næst, flæða gögnin sjálfkrafa á rétta staði.
Fjárhagur á hreinu

Beintenging við bókhaldskerfi

Karva tengist beint við Dynamics 365 Business Central, Dynamics 365 F&O eða jafnvel Navision. Þetta þýðir að allar pantanir og önnur gögn eru ávallt rétt og uppfærð í rauntíma.
Yfirsýn stjórnenda

Karva fyrir stjórnendur

Með Karva fylgir öflugt admin app þar sem stjórnendur geta fylgst með lykiltölfræði, sent skilaboð til sölufólks til að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri og stjórnað hvaða vörulista hver sér. Þetta eykur yfirsýn, bætir upplýsingaflæði og tryggir að allir séu með réttar upplýsingar.
Réttar vörur á réttum tíma

Sérsniðnir vörulistar

Sölufólk getur sérsniðið vörulista að sínum viðskiptavinum og þannig tryggt að þeir fái réttar vörur. Þetta sparar tíma, minnkar villur og gerir alla sölu markvissari.
Leiðarplön

Fullkomið skipulag með leiðarlýsingum

Karva gerir sölufólki kleift að skipuleggja vikuna með leiðarplönum. Þannig er auðvelt að sjá hvaða viðskiptavini á að heimsækja, hvaða verkefnum er lokið og tryggja betra skipulag og i yfirsýn yfir söluverkefni. verkefni vikunnar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn.