Varða

Greiningarlausn frá Advania sem veitir heildstæða mynd af öryggi og aðgengi að gögnum í Microsoft 365 umhverfinu þínu.
Bókaðu greiningu

Af hverju skiptir Varða máli?

Minnkar rekstrar- og öryggisáhættu
með því að greina of víðtækar heimildir, ótrygga deilingu og ytri aðganga áður en þau verða að vandamáli.
Undirbýr örugga innleiðingu á Copilot
með skýru mati hvaða atriði þarfnast úrbóta og hvar ætti að loka á aðgengi að gögnum til að koma í veg fyrir aðgengi starfsfólks að viðkvæmum gögnum.
Styður regluvörslu og samræmi (compliance)
með tillögum að Purview‑næmismerkingum (e. Sensitivity lables) og DLP‑stefnum byggðum á raunverulegri notkun og áhættu.
Sparar tíma og kostnað
með sjálfvirkri greiningu, forgangsröðun og tilbúnum aðgerðalista. Þar af leiðandi er engin handavinna eða ágiskanir.
EINFÖLD FRAMSETNING

Hvað gerir lausnin?

Lausnin greinir allt SharePoint og OneDrive landslagið, metur raunverulega áhættu og setur hana fram í einföldu, mælanlegu formi sem styður hraðar og upplýstar ákvarðanir sem geta meðal annars stutt við innleiðingu á Copilot gervigreindarlausnum.

Í stað þess að treysta á tilfinningu eða sundurleit gögn færðu skýra heildareinkunn í formi bókstafa (A+–F), ásamt sýnilegri forgangsröðun á helstu veikleikum, tækifærum og nauðsynlegum aðgerðum til úrbóta.

GREINARGÓÐ SKÝRSLA

Hvað færður í hendurnar?

Varða útbýr auðlæsilegt pdf skjal með upplýsingar um heildareinkunn umhverfisins út frá skilgreindum áhættuþáttum ásamt forgangsröðun tillagna og aðgerða til umbóta í umhverfinu.
Gervigreind

Traustur grunnur fyrir Copilot

Varða tryggir að aðgengi Copilot að gögnum fyrirtækisins séu með réttum, stýrðum og öruggum hætti. Með skýrri sýn á aðgengi að gögnum, minnkum við áhættu og tryggjum hraðari innleiðingu. Þannig hámarkar þú ávinninginn af Copilot og byggir traustan grunn fyrir stafræna framtíð.
Viltu vita meira?

Bókaðu greiningu

Sendu okkur skilaboð og við heyrum í þér um Vörðu, hvort sem er að kynna vöruna betur eða bara einfaldlega bóka greiningu.