Þjónustu- og rekstrarsamningar

Við einföldum flóknar áskoranir

Þjónustuleiðir

Advania býður Power Platform viðskiptavinum upp á mismunandi samninga sem innihalda mismunandi þjónustur, annars vegar varðar almenna þjónustu og hins vegar varðandi rekstrarþjónustu. Hver og einn getur því valið þá þjónustuleið sem hentar sínum rekstri og umhverfi.

Án samningsBasicStandardPremium

Aðgangur að þjónustuborði

Viðbragðstími þjónustuborðs

4 klst.

4 klst.

2 klst.

Staða þjónustuverka á þjónustugátt

Aðgangur að veffyrirlestrum

Innifaldir mánaðarlegir þjónustutímar

30 mín

2 klst.

4 klst.

Úttekt á umhverfi við upphaf samnings

Notendaumsjón*

Afsláttur af útseldri vinnu

15%

20%

Stöðufundir

2 á ári

4 á ári

Mentor

Binditími

3 mánuðir

3 mánuðir

3 mánuðir

Mánaðarverð

29.900 kr. án vsk.

59.900 kr. án vsk.

250.000 kr. án vsk.

*Notendaþjónusta er bundin við notendur í Power Platform.

Valkvæðar viðbætur við samninga

Verð

Power Platform ALM - Innbyggt**

45.000 kr. án vsk.

Power Platform ALM - Azure DevOps**

290.000 kr. án vsk.

** Miðast við uppsetningu á nýjum umhverfum. Vinna við tengingu á eldri umhverfum í rekstri þarfnast greiningar og sértækrar vinnu sem fellur utan verð samnings.

Þjónustulýsingar

Hvað er innifalið í ofangreindum þjónustuþáttum? Hér fyrir neðan eru nánari útskýringar á hverjum þjónustuþætti fyrir sig og hvað er innifalið.

Öllum viðskiptavinum stendur til boða að hringja (440-9000) inn á almennt þjónustuborð Advania á skilgreindum opnunartíma þar sem þeir geta lagt inn þjónustubeiðni sem síðan er send á ráðgjafaborð Power Platform deildarinnar. Beiðnin fer þar í forgangsröðun út frá þjónustusamning viðkomandi viðskiptavinar og svarað innan skilgeinds viðbragðstíma. Viðskiptavinur getur einnig sent inn þjónustubeiðni á netfangið bi@advania.is og stofnast þá sjálfkrafa í beiðnakerfi Advania.

Advania vinnur umbeðin verk sem berast inn á þjónustuborðið í símtölum eða með öðrum hætti og innheimtir gjald fyrir slíka vinnu samkvæmt gjaldskrá Advania. Umsamin sérkjör viðskiptavinar taka mið af gildandi gjaldskrá hverju sinni.


Viðbragðstími er mismunandi eftir þeirri þjónustuleið sem viðskiptavinur velur. Skilgreindur viðbragðstími felur ekki í sér að vandamálið sé leyst á þeim tíma heldur eingöngu að viðskiptavinur fái svör frá Advania um að vinna sé hafin. Viðskiptavinur getur einnig sent inn tölvupóst á netfangið bi@advania.is sem stofnar sjálfkrafa beiðni í beiðnakerfi Advania.


Í þjónustugátt Advania er hægt að fylgjast með stöðu og uppfæra verk eftir þörfum. Einnig er hægt að stofna ný verk ef upp koma mál sem þarfnast úrlausnar. Þegar þjónustubeiðnin er fyllt út borgar sig að skrifa greinargóða lýsingu á vandamálinu sem þú stendur frammi fyrir þannig að við getum brugðist hratt og örygglega við.


Advania er með veffyrirlestra um ákveðin málefni sem notendur geta skráð sig á. Allir skráðir einstaklingar á póstlista Advania í Power Platform fá upplýsingar um veffyrirlestra en einnig er hægt að fylgjast með næstu dagskrá veffyrirlestra á heimasíðu Advania.

Skráning á póstlista fer fram á https://powerplatform.advania.is/postlistar


Viðskiptavinir geta sent erindi inn á Power Platform þjónustuborð Advania og fengið úrlausn sinna mála með því að nýta innifalda tíma í hverjum mánuði. Fari verk umfram innifalda tíma er viðskiptavinur upplýstur um slíkt og tilkynnt að greiða þurfi fyrir verkið samkvæmt gjaldskrá og kjörum viðskiptavinar.

Ónýttir tímar hvers mánaðar mynda ekki inneign yfir í næsta mánuð á eftir heldur fyrnast um hver mánaðarmót.


Við framkvæmum ítarlega úttekt á Power Platform umhverfi viðskiptavinar við upphaf samnings til að tryggja öryggi, stjórnhæfni og bestu venjur.

Úttektin felur í sér:

  • Greining á tenant-stillingum: Yfirferð á sjálfgefnum réttindum, t.d. úthlutun Developer-, Production- og Trial-umhverfa, og takmörkun á sjálfsafgreiðslu.
  • Umhverfisstillingar: Staðfesting á öryggishópum, uppfærslutakti (refresh cadence) og aðgangsstýringum.
  • Öryggi og stjórnun: Yfirferð á DLP-stefnum, hlutverkum (RBAC), og virkjun audit logs.
  • Bestu venjur í uppsetningu: Skipting Dev/Test/Prod, lausnastjórnun (Solutions), og eftirlit í Power Platform Admin Center.
  • Skýrsla og umbótaáætlun: Afhending á niðurstöðum, áhættumati og tillögum að úrbótum.

Markmiðið er að draga úr áhættu, tryggja samræmi við bestu venjur Microsoft og leggja grunn að öruggri og skilvirkri notkun Power Platform.

Að lokinni úttekt er viðskiptavini afhent skýrsla með niðurstöðum, áhættumati og tillögum að úrbótum. Viðskiptavinur tekur síðan ákvörðun um hvaða úrbætur verða framkvæmdar og í hvaða forgangi.


Notendaumsjón innifelur þjónustu tengt notendaumsýslu á notendum í Power Platform.

Eftirfarandi atriði eru innifalin. Annað utan þessarar upptalningar er greitt sérstaklega fyrir.

  • Umsýsla leyfa Microsoft fyrir Power Platform, þ.e. pöntun á nýjum leyfum, breyting á leyfum eða uppsögn leyfa.
  • Stofnun notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavinar.
  • Úthlutun og/eða breyting á Power Platform leyfum notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavinar.
  • Endurstilling lykilorða notenda í Microsoft umhverfi viðskiptavina.

*Notendaumsjón er háð því að viðskiptavinur hafi gefið Advania viðeigandi heimildir til umsýslu notendaupplýsinga í Microsoft umhverfi sínu.


Þjónustuleiðir innifela mismunandi afslátt af gjaldskrá Advania á útseldri vinnu í samræmi við ábyrgð Advania á hugbúnaði samkvæmt almennum viðskiptaskilmálum. Afsláttur gildir ekki af vinnu tengdri Power Platform en ekki innan annarra deilda Advania.


Þjónustustjóri/viðskiptastjóri ber ábyrgð á að setja upp reglulega stöðufundi með viðskiptavini þar sem farið er yfir samstarfið og stöðu einstakra mála ef þess gerist þörf. Fjöldi stöðufunda á ári fer eftir valinni þjónustuleið. Stöðufundur fara fram í gegnum Teams, nema ef um annað er samið. Í þeim tilvikum þar sem óskað er eftir fundi hjá viðskiptavini gilda almenn ákvæði almennra viðskiptaskilmála Advania um ferðakostnað.


Premium áskriftin innifelur skilgreindan mentor. Það er m.a. í verkahring mentor að aðstoða viðskiptavin við allt er kemur að Power Platorm, svara spurningum og aðstoða eftir þörfum. Viðskiptavinur getur einnig leitað til síns mentor með mál sem þarfnast sérstakrar skoðunar. Allar þjónustubeiðnir skulu þó sendar á þjónustuborð Advania.


Frá undirritun samnings er samningurinn bundinn skv. skilgreindum tíma á valinni þjónustuleið. Að binditíma loknum framlengist binditími skv. almennum viðskiptaskilmálum og grunnsamningi við Advania.


Valkvæðar viðbætur

Hægt er að bæta við viðbótum við þjónustuleiðir. Mismunandi valkostir standa til boða út frá valinni þjónustuleið.

Viðskiptavinir með þjónustusamning hafa val um að bæta við uppsetningu á innbyggðri ALM uppsetningu í Power Platform sem inniheldur CI/CD pípur sem trygggir örugga og rekjanlega dreifingu lausna frá þróun til framleiðslu.

Viðskiptavinir sem velja þessa leið eru þó háðir þeim kröfum sem Microsoft setur á þessa virkni.


Viðskiptavinir með annað hvort Standard eða Premium þjónustusamning hafa val um að bæta við sértækri ALM uppsetningu Advania í Azure DevOps sem inniheldur Git repos, CI/CD pipelines og bestu venjur fyrir Power Platform. Þetta tryggir sjálfvirka, örugga og rekjanlega dreifingu lausna frá þróun til framleiðslu.

Helstu verkþættir

  1. Skipulag og stefna
    • Skilgreina ALM-arkitektúr, umhverfisstefnu (Dev/Test/Prod) og stjórnhæfni.
  2. Source Control
    • Setja upp Git repositories í Azure DevOps fyrir Power Platform lausnir.
    • Innleiða útgáfustjórnun og branching-strategíu.
  3. Power Platform CLI og Solutions
    • Nota Power Platform CLI til að flytja lausnir milli umhverfa.
    • Skilgreina Managed og Unmanaged Solutions fyrir ALM.
  4. CI/CD Pipelines
    • Búa til Azure DevOps pipelines fyrir:
      • Sjálfvirka byggingu og útgáfu lausna.
      • Prófanir og samþykktarferli.
  5. Environment Variables og Connection References
    • Stilla breytur og tengingar til að tryggja flytjanleika milli umhverfa.
  6. Bestu venjur og stjórnhæfni
    • Innleiða samþykktarferli, rekjanleika og öryggisráðstafanir.
    • Skilgreina ferla fyrir breytingastjórnun og útgáfustjórnun.

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um Power Platform og þjónustuleiðirnar eða vantar ráðgjöf?
Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband um hæl.