GERVIGREIND OG SJÁLFVIRKNI

Láttu Business Central vinna meira fyrir þig

Með gervigreind og sjálfvirkni geturðu fækkað handtökum, einfaldað dagleg verkefni og látið kerfið sjá um meira af endurtekinni vinnu.

Við hjálpum þér að finna hvar ávinningurinn er mestur og koma fyrstu lausninni í notkun.

Bóka samtalSjá hvernig þú byrjar
Á ÞESSARI SÍÐU

Hvað viltu skoða?

Copilot
Fulltrúar (Agents)
Lausnir Advania
AI og gögnin þín
Hvar á að byrja?
GERVIGREIND Í BUSINESS CENTRAL

Frá handavinnu yfir í sjálfvirkni

Business Central er ekki lengur bara kerfi þar sem starfsfólk skráir upplýsingar og vinnur úr þeim. Gervigreind og sjálfvirkni skapa tækifæri til að færa meiri vinnu yfir á kerfið sjálft.

Copilot aðstoðar starfsfólk við dagleg verkefni. Agentar geta tekið að sér afmarkaða ferla. Lausnir Advania bæta við sjálfvirkni sem tekur mið af íslenskum viðskiptaferlum og með nýjum AI-tengingum skapast fleiri möguleikar til að vinna með gögn og upplýsingar

Markmiðið er einfalt: minni handavinna, færri endurtekin verkefni og meiri tími í verðmætari vinnu
Fastverðspakkar

Innleiðing á föstu verði

Við setjum upp gervigreind og agenta í Business Central á föstu verði, með uppsetningu, prófunum og kennslu inniföldum.

Claude og Copilot með BC

Örugg tenging gervigreindar við Business Central eða sérsniðin lausn eftir þínum þörfum.

Frá 75.000 kr.

án VSK.

Skoða pakka

Fulltrúar frá Advania

Afstemming lánadrottna og sjálfvirk tollskýrslugerð fyrir íslensk ferli.

Frá 54.000 kr.

án VSK.

Skoða pakka

Fulltrúar frá Microsoft

Uppsetning og virkjun á Sales Order Agent, Payables Agent og Expense Agent.

Frá 100.000 kr. per fulltrúa

án VSK.

Skoða pakka
Sjá alla pakka

Öll verð miðast við allt að 5 starfsmenn.

GRUNNATRIÐIN

Copilot eða fulltrúi?

Munurinn felst fyrst og fremst í því hver vinnur verkið

Copilot

Aðstoðarmaður sem vinnur með þér.

Copilot styður notandann við dagleg verkefni í Business Central.

Hver hefur frumkvæðið?

Notandinn biður um aðstoð eða notar Copilot-aðgerð og Copilot aðstoðar við verkefnið.

Hentar vel þegar

Starfsmaðurinn á áfram að stýra vinnunni en vill vinna hana hraðar og með minni fyrirhöfn.

Fulltrúar

Stafrænir aðstoðarmenn sem geta tekið að sér skilgreinda ferla.

Fulltrúar geta brugðist við atburðum og unnið afmarkað verkefni með minni íhlutun starfsmanns.

Hver hefur frumkvæðið?

Fulltrúi getur brugðist við skilgreindum atburði, til dæmis þegar erindi eða gögn berast.

Hentar vel þegar

Verkefnið er endurtekið, reglubundið og hægt er að skilgreina með skýrum hætti hvað á að gera.

Einföld þumalputtaregla: Copilot hjálpar þér að vinna verkið hraðar. Fulltrúi vinnur meira af verkinu fyrir þig.

Viltu vita meira?

Kynntu þér hvernig Copilot og fulltrúar geta stutt daglega vinnu og sjálfvirknivætt ferla í Business Central.

Frá aðstoð yfir í sjálfvirka ferla

Rétta leiðin ræðst af verkefninu, ferlinu og þeim ávinningi sem þú vilt ná.

 

Innbyggð AI-Aðstoð

Copilot

Copilot getur aðstoðað notendur við fjölbreytt verkefni í Business Central.

  • Spjall og aðstoð við vinnu í kerfinu
  • Greining og vinna með lista
  • Samantektir og úrvinnsla upplýsinga
  • Aðstoð við valin viðskiptaferli
  • Vinnur innan aðgangs notandans í Business Central
Sjálfvirkni næsta skrefið

Fulltrúar

Fulltrúar geta tekið að sér stærri hluta skilgreinds ferlis með viðeigandi eftirliti starfsmanna.

  • Sölupöntunarfulltrúi: Vinnsla sölupantana úr tölvupósti
  • Payables Agent: Aðstoð við vinnslu innkaupareikninga
  • Expense Agent: Aðstoð við vinnslu kostnaðar
  • Hentar endurteknum og skýrt afmörkuðum verkefnum
ÍSLENSKIR VIÐSKIPTAFERLAR

Lausnir Advania

Sjálfvirkni og gervigreind sem tekur mið af íslensku viðskiptaumhverfi.

  • Lausnir fyrir afmörkuð íslensk verkefni
  • Samspil staðlaðrar virkni og viðbóta
  • Minni innsláttur og einfaldari ferlar
  • Ráðgjöf, innleiðing og eftirfylgni
Nýtt viðmót við gögn

AI-tengingar

Nýjar tengingar geta gert notendum kleift að spyrja gögnin á venjulegu máli.

  • Greining gagna með einföldum fyrirspurnum
  • Samantektir og myndræn framsetning
  • Dæmi um tengingu Business Central við Claude
  • Möguleikar metnir út frá öryggi og aðgangsstýringu
gervigreind OG GÖGNIN ÞÍN

Spurðu gögnin í stað þess að leita að þeim

Nýjar tengingar með gervigreind geta breytt því hvernig við vinnum með gögn úr Business Central. Í stað þess að byrja á útflutningi, uppsetningu skýrslu eða leit að réttum gögnum getur notandinn sett fram spurningu á venjulegu máli.

  • Gögn sótt og flokkuð úr Business Central
  • Frávik dregin fram til frekari skoðunar
  • Niðurstaða sett fram með lykiltölum og myndritum

Gervigreind getur þannig orðið nýtt viðmót við gögnin, ekki bara ný leið til að búa til texta.

HVAR Á AÐ BYRJA?

Frá hugmynd í mælanlegan ávinning

Það þarf ekki að hefja vegferðina með stóru gervigreindarverkefni. Oft felast bestu tækifærin í verkefnum sem starfsfólk framkvæmir aftur og aftur.

Finna tímafreku verkin
Við förum yfir endurtekin verkefni og ferla og finnum hvar starfsfólk ver tíma í handavinnu, skráningu og eftirfylgni.
Velja fyrsta tækifærið
Við metum hvort Copilot, agent, staðlaðar aðgerðir Business Central eða sérhæfð lausn henti best. Byrjað er á afmörkuðu verkefni.
Innleiða og mæla
Við metum hvort Copilot, agent, staðlaðar aðgerðir Business Central eða sérhæfð lausn henti best. Byrjað er á afmörkuðu verkefni.

Gervigreind þróast hratt

Virkni, leyfismódel, tungumálastuðningur og framboð gervigreindarlausna í Business Central geta breyst. Þess vegna er mikilvægt að meta forsendur fyrir hvert verkefni.

  • Hvaða gervigreindarvirkni er tiltæk í viðkomandi Business Central umhverfi?
  • Hvaða lausn hentar ferlinu og markmiðunum best?
  • Hver er áætlaður kostnaður og notkun?
  • Hvernig er öryggi, aðgangsstýring og meðferð gagna útfærð?
  • Dugar stöðluð lausn eða þarf sérhæfða útfærslu?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um þessa Business Central? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband um hæl.