Advania CX Forum – Sameiginleg framtíðarsýn samskiptavera á Norðurlöndum
Advania CX Forum er árleg ráðstefna þar sem viðskiptavinir Advania frá öllum Norðurlöndunum koma saman til að fræðast, miðla reynslu og kynnast öðrum notendum Genesys kerfisins. Í ár var engin undantekning, ráðstefnan var einstaklega vel heppnuð, faglega sterk og skemmtileg í senn. Hún skapaði vettvang þar sem sérfræðingar, stjórnendur og tækniaðilar gátu rætt nýjustu lausnir í þjónustutækni og fengið dýpri innsýn í þróunina sem mótar framtíðina.
Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna
Vaxandi Genesys-samfélag á Norðurlöndum
Genesys Cloud – leiðandi og í stöðugri þróun
Genesys Cloud er í dag leiðandi á samskiptavers markaðnum. Enda lausnin framúrskarandi þegar kemur að sveigjanleika, áreiðanleika og möguleikum til að tengja saman allar samskiptaleiðir fyrirtækja á einum stað. Á ráðstefnunni komu vel fram helstu styrkleikar kerfisins:
- Sveigjanleg samskiptaumsýsla fyrir síma, netspjall, tölvupóst, samfélagsmiðla og sjálfvirkar rásir.
- Auðveld viðbótartækni og samþættingar, sem gera fyrirtækjum kleift að sérsníða lausnina að sínum ferlum.
- Sterk þróunaráhersla þar sem uppfærslur eru reglulegar og nýir möguleikar bætast stöðugt við.
Genesys hefur jafnframt verið í fararbroddi þegar kemur að nýtingu gervigreindar. Þar má nefna:
- Sjálfvirkar greiningar og innsýn, t.d. tón- og tilfinningagreining.
- AI-knúnar leiðbeiningar fyrir þjónustufulltrúa í rauntíma.
- Vitræn sjálfsafgreiðsla og spjallmenni sem geta leyst einfaldari mál og stytt biðraðir.
Gervigreindin er fljótt að verða nauðsynleg hluti af þjónustuferlum fyrirtækja og Genesys Cloud er vel í stakk búið til að leiða þá þróun áfram.
Advania CX Forum var einstaklega vel heppnað og sýndi glögglega hversu hratt og kraftmikið Genesys-umhverfið er að þróast á Norðurlöndunum. Þátttakendur fengu tækifæri til að fræðast um nýjustu lausnir, heyra af bestu starfsvenjum og byggja sterkara tengslanet við aðra notendur. Með öflugu samfélagi, sívaxandi möguleikum og hraðri þróun gervigreindar er ljóst að framtíð þjónustutækni er spennandi – og Genesys Cloud stendur þar fremstur í flokki.
Okkur er strax farið að hlakka til næsta árs.