Er upplýsingatækniumhverfið þitt skipulagt?
Nú þegar gögn og hugbúnaður fyrirtækja er geymdur í skýi þarf að huga að hvernig best að að skipuleggja umhverfið til að halda kostnaði niðri og tryggja öryggi.
Gísli Guðmundsson
sérfræðingur í skýjalausnum og Microsoft Azure MVP
Elísabet Ósk Stefánsdóttir
vörustjóri Skjaldar hjá rekstrarlausnum Advania
Azure Landing zone leysir það á skilvirkan hátt þannig auðvelt er að skala upp og mæta þörfum framtíðarinnar. Hér verður farið yfir þróun gagna- og hugbúnaðargeymslu til setja Azure Landing zone í samhengi.
„On-prem“er stytting sem algengt er að nota yfir svokölluð „on-premisis“ umhverfi. Það þýðir að hýsa kerfi og gögn á staðnum, þ.e. á vélum eða í vélasal staðsett innan veggja fyrirtækisins eða hjá þjónustuaðila eins og Advania. Áður fyrr voru upplýsingatæknikerfi aðeins hýst á slíkum vélum en nú geta fyrirtæki einnig nýtt sér skýið - og þá kosti sem það hefur í för með sér. Bland af báðu eða „hybrid“ umhverfi er klárlega eitthvað sem fyrirtæki ættu að skoða og nýta sér. Það nýtist til þess að einfalda rekstur og umsjón á upplýsingatæknikerfum, bæta öryggi, lækka rekstrarkostnað og opna á þá framþróun sem fer fram í skýjalausnum.
SaaS eða „Software-as-a-Service“
Azure Landing Zone
Markmiðið með Azure Landing Zone er einnig að áframhaldandi stýring á umhverfinu verði skilvirk, örugg og áreiðanleg - sem er útkoma þess að setja upp Azure umhverfið með þeim reglum og stefnum (e. policies) sem Landing Zone býður upp á.
Helsti ávinningur af því að setja upp Azure Landing Zone er
- Skipulögð innleiðing: Azure Landing Zone er byggt á skipulagsramma sem nýtir bestu aðferðir (e. best practices) og viðurkennda staðla. Innleiðingin verður því skilvirk, skipulögð og áreiðanleg.
- Öryggi: Azure Landing Zone inniheldur öryggisstefnur og stjórnunarverkfæri (e. management tools) sem tryggir að umhverfið uppfylli ströngustu öryggiskröfur og reglugerðir.
- Skalanleiki og sveigjanleiki: Fyrirtæki geta hannað og aðlagað umhverfi sitt til að mæta breytilegum þörfum og vexti. Þetta hjálpar bæði stórum og litlum fyrirtækjum að skala auðveldlega upp og niður eftir þörfum.
- Kostnaðarstjórnun: í Azure Landing Zone geta fyrirtæki sett upp fjárhagsáætlun og fylgst betur með skýjakostnaði í Azure. Þetta stuðlar að því að skýið sé hagkvæm fjárfesting og að stofnist ekki til óþarfa kostnaðar.