Errol Norlum var einn af fyrirlesurum Haustráðstefnu Advania 2025 í Hörpu Mynd: Advania/BIGS

30.09.2026

Errol Norlum ráðinn framkvæmdastjóri gervigreindar hjá Advania samstæðunni

Errol Norlum hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gervigreindar (e. Chief AI Officer) hjá Advania samstæðunni og tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. október. Hlutverk hans er að samræma gervigreindarlausnir Advania þvert á öll markaðssvæði fyrirtækisins í Evrópu.

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

„Í nýrri tækni eins og gervigreind er gífurlegur styrkur falinn í því að getað boðið upp á vörur og sérfræðiþekkingu frá Advania samstæðunni sem annars væru ekki til staðar á Íslandi. Þess vegna er mjög spennandi að sjá samstæðuna leggja áherslu á að samræma framboðið þvert á þá markaði sem Advania starfar á,“ segir Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania á Íslandi.

Errol Norlum kynnti Advania-ALT á hliðarviðburði Haustráðstefnu Advania í Guðrúnartúni fyrr í mánuðinum. Mynd/Hörður Sveinsson

Errol hefur síðustu misseri leitt gervigreind hjá Advania í Svíþjóð en í þessari nýju stöðu ber Errol ábyrgð á stefnu og viðskiptalegri þróun gervigreindarlausna Advania samstæðunnar. Á meðal verkefna hans er áframhaldandi þróun Advania ALT, nýs vettvangs sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.

Hann mun jafnframt samræma vinnu gervigreindarleiðtoga og stjórnenda samstæðunnar, byggja upp tæknisamstarf og styðja við stór, landamæralaus verkefni viðskiptavina Advania þvert á markaði.