18.03.2026

Lager, vöruafgreiðsla og verkstæði Advania flytur

Lager, verkstæði og vöruafhending færðu sig um set og opnuðu á nýjum stað í Skútuvogi 12 mánudaginn 30. mars.

Bragi Gunnlaugsson
Sérfræðingur, innviðalausnum Advania

Við hlökkum til að taka á móti þér í Skútuvogi

Þann 26. mars skelltum við í lás í síðasta skipti á starfstöðinni okkar að Borgartúni 28. Lager, vöruafhending, vörumóttaka og verkstæði opnuðu í glæsilegu húsnæði í Skútuvogi, við hliðina á Húsasmiðjunni og Blómaval. Opnunartíminn á nýja staðnum verður frá 8-16 alla virka daga.

Við erum afar spennt að taka á móti viðskiptavinum á nýjum stað og halda áfram að veita góða þjónustu.