Power Platform er að breyta leiknum
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Sigfús Jónasson
sölustjóri Power Platform og gervigreindar hjá Viðskiptalausnum Advania
Þessi þróun hefur haft áhrif á atvinnulífið og þurfa fyrirtæki nú að bregðast hraðar við breytingum en nokkru sinni fyrr, þróa lausnir á skemmri tíma og tryggja að tæknin gangi í takt við breytingar í rekstri. Samhliða þessu hefur svokölluðum low-code lausnum vaxið fiskur um hrygg. Þessi þróun er ekki tilviljun en til að efla samkeppnishæfni og auka skilvirkni í rekstri hafa margir horft til þeirra möguleika sem tæknin getur boðið.
Þessar lausnir geta stytt þróunartíma og þannig gert fyrirtækjum kleift að koma fljótt með raunhæfar lausnir á áskorunum. Með þessu lækka einnig aðgangshindranir og verður hugbúnaðarþróun aðgengilegri fyrir breiðari hóp fólks sem jafnvel býr ekki yfir þekkingu og/eða menntun í forritun en þekkir sína viðskiptaferla vel og hvaða áskoranir tengjast þeim. Þegar ávinningurinn er dreginn saman má létta álag á þróunarteymum og upplýsingatæknideildum, efla nýsköpun innan rekstrareininga og byggja betur ofan á gagnadrifna menningu.
Mikilvægur hlekkur stefnumótunar
Hvers vegna Power Platform?
Endalausir möguleikar
Power Platform samanstendur af fimm meginstoðum sem vinna saman í einu vistkerfi:
• Power Apps – þróun á öppum
• Power Automate – sjálfvirknivæðing ferla
• Power BI – greining gagna og hönnun mælaborða
• Power Pages – hönnun á ytri vefsíðum
• Copilot Studio – þróun á gervigreindarlausnum
Að baki þessum verkfærum er Microsoft Dataverse, öflugur og öruggur gagnagrunnur í skýinu, auk á annað þúsund tengimöguleikar (e. connectors) við hin ýmsu kerfi – sem styttir sporin og auðveldar að tengja saman gögn og þjónustur.