Áskoranir í aðfangakeðju tæknibúnaðar
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Valtýr Gíslason
Sölusérfræðingur miðlægra lausna
Hvaða áhrif hefur þetta á viðskiptavini?
Allt þetta gerir skipulagningu í innkaupum á tæknibúnaði mikilvægari en nokkru sinni fyrr.
Viðskiptavinir sem hefja samtal snemma og hafa skýra áætlun fyrir sín innkaup, geta átt von á betra aðgengi að búnaði og fyrirsjáanlegri afhendingu. Verkefni sem eru sett af stað með litlum fyrirvara geta hins vegar staðið frammi fyrir meiri áskorunum við að útvega réttan búnað á réttum tíma.
Hvernig við aðstoðum viðskiptavini
Advania keppist við að upplýsa viðskiptavini um stöðuna eins fljótt og hægt er, svo hægt sé að aðlaga áætlanir tímanlega. Til að draga úr áhrifum fylgjumst við stöðugt með verði, afhendingartíma og framboði hjá framleiðendum og dreifingaraðilum. Einnig nýtum við náin tengsl okkar við samstarfsaðila í aðfangakeðjunni til að forgangsraða brýnum þörfum viðskiptavina. Ef ákveðinni vöru seinkar eða verð hækkar óeðlilega, þá ráðleggja sérfræðingar okkar um aðrar lausnir eða hjálpa til við að breyta kröfum eða útfærslum þar sem það er mögulegt.
Við leggjum einnig áherslu á að viðskiptavinir skipuleggi framtíðarverkefni og endurnýjun búnaðar með góðum fyrirvara, til að minnka áhættu vegna sveiflna á markaði.
Viðskiptavinir með stærri verkefni eða reglubundna endurnýjun á búnaði eru hvattir til að hafa samband við okkur sem fyrst, svo við getum aðstoðað og veitt ráðgjöf eins og hægt er.
Ef þú ert með fyrirhuguð búnaðarkaup eða vilt fara yfir áætlanir í ljósi aðstæðna á markaði, hafðu endilega samband við sérfræðinga okkar.
Við munum halda áfram að miðla upplýsingum eftir því sem staðan þróast.